Svejk er víða - Leiðari 41. tbl.
Ég hef frá rennandi blautu barnsbeini verið mikill aðdáandi góða dátans Svejk eftir Jaroslav Hasek. Fyrstu kynni okkar voru örugglega í gegnum lestur Gísla Halldórssonar á gömlu Gufunni góðu. Það mun hafa verið árið 1979 sem Gísli las Svejk fyrir þjóðina með miklum tilþrifum og mun lesturinn hafa fengið mikla hlustun.
Þarna er ég í kringum 12 ára aldurinn og lítið að spá í alheimspólítik en fannst Dátinn einfaldlega drepfyndinn og leikrænn lestur Gísla hjálpaði mikið til. Ég hef ekki verið mikið eldri en þetta þegar ég las svo bókina í fyrsta skipti af óteljandi skiptum.
Það er ekki vafi að þýðing Karls Ísfelds hjálpaði mikið til við að kynna Svejk fyrir þjóðinni en hún er snilldarleg og þykir ná hinum háðska anda Haseks vel. Karl laumar smá vísum inn í textann sem hann samdi sjálfur og eiga sér ekki fyrirmynd í frumtextanum. Hér er t.d. ein:
Að vinum á ég steina, grös og grundir,
giljadrög og læki, ef svo ber undir.
En hún, sem brosmild eitt sinn undi hjá mér,
fór út í buskann. Ég er búinn að ná mér.
En ég hef sem sagt lesið bókina oft og mörgum sinnum og í hvert sinn má finna nýja hlið á snilldinni. Hún er ein fyrsta og jafnframt þekktasta skáldsagan sem skrifuð var gegn stríði og hernaðarbrölti en er jafnframt hörð ádeila á þjóðrembu og hrokafulla, hégómlega valdhafa. Nóg er til af slíkum enn þann dag í dag.
Mörg af ævintýrum Svejks eru byggð á upplifunum Haseks sjálfs en hann var kallaður í tékkneska herinn, handtekinn af Rússum þar sem hann var gerður að einhverskonar ritara eins og Svejk.Hann var ritstjóri tímarits um dýralíf en var fljótlega rekinn fyrir að birta greinar um ímynduð dýr sem hann hafði spunnið upp eins og sjálfboðaliðinn í sögunni. Hasek var anarkisti og trúleysingi og fyrir það var hann margoft handtekinn og notar hann ýmislegt frá samskiptum sínum við lögregluna í söguna um Svejk. Hasek verslaði um tíma með hunda eins og Svejk.
Nú á dögunum vakti athygli að Jón Gnarr greip til líkingamáls þegar hann fjallaði um úrsögn sína úr þingflokki Viðreisnar. Augljóslega er hann að vísa í söguna um Svejk þegar hann segist hafa verið sendur eins og hermaður út á vígvöllinn án alls stuðnings að ofan. Svejk var með vottorð upp á að vera löggilltur hálfviti en var slunginn þrjótur. Ekki veit ég hvaða vottorð Jón Gnarr er með uppá vasann en sannarlega hefur hann oft frumlega og öðruvísi sýn á heiminn, eins og Svejk.
Eitt verð ég að nefna hér, en það er skyldleiki ævintýra Svejks og Gerplu eftir Laxness. Ég hef þá kenningu að Laxness hafi verið búinn að lesa Svejk þegar hann fór að leggja drög að Gerplu en sú hárbeitta gagnrýni á hverskyns mikilmennskubrjálæði og hernaðarbrölt er sú sama,sett fram undir merkjum háðs og fáránleika.
Lestur Gísla Halldórssonar á á góða dátanum Svejk má finna á Storytel og fleiri veitum en Gerplu má finna á Sarpinum hjá Rúv. í frábærum lestri höfundar.
„Enginn ganar út í stríð,
fyrir offiséra og kóngalýð.”
Hinrik Már Jónsson
