Annað mót KS deildarinnar

Á miðvikudaginn verður annað mót KS-Deildarinnar haldið í Reiðhöllinni Svaðastöðum. Að þessu sinni er það fimmgangur, en honum þurfti að fresta um daginn vegna veðurs. Mótið verður haldið miðvikudagskvöldið 11.mars og hefst keppni kl.20:00.

„Liðin hafa verið að æfa sig og miðað við ráslistann verður um spennandi keppni að ræða. Veðurspáin er ágæt og hvetjum við norðlendinga til að fjölmenna og styðja sín lið og fylgjast með sterkustu fimmgangskeppni innanhúss í vetur,“ segir Svala Guðmundsdóttir um keppnina framundan.

Ráslistinn er eftirfarandi:

  1. Agnar Þór Magnússon Efri-Rauðalækur/Lífland - Vissa frá Lambanesi
  2. Fredrica Fagerlund TopReiter - Snær frá Keldudal
  3. Barbara Wenzl Draupnir/Þúfur - Seiður frá Hörgslandi
  4. Jóhann B. Magnússon Íbess-Gæðingur - Sjöund frá Bessastöðum
  5. Tryggvi Björnsson Hofstorfan/66°norður - Blær frá Miðsitju
  6. Valdimar Bergstað Hrímnir - Krapi frá Selfossi
  7. Guðmundur Tryggvason Efri-Rauðalækur/Lífland - Díva frá Steinnesi
  8. Magnús Bragi Magnússon Íbess-Gæðingur - Álfadís frá Svalbarðseyri
  9. Gísli Gíslason Draupnir/Þúfur - Karl frá Torfunesi
  10. Hallfríður Óladóttir TopReiter - Kolgerður frá Vestri-Leirárgörðum
  11. Bjarni Jónasson Hofstorfan/66°norður - Dynur frá Dalsmynni
  12. Þórarinn Eymundsson Hrímnir - Þeyr frá Prestsbæ
  13. Mette Mannseth Draupnir/Þúfur - Hnokki frá Þúfum
  14. Líney María Hjálmarsdóttir Hrímnir - Kunningi frá Varmalæk
  15. Hanna Rún Ingibergsdóttir Íbess-Gæðingur - Hlíf frá Skák
  16. Elvar Einarsson Hofstorfan/66°norður - Gáta frá Ytra-Vallholti
  17. Teitur Árnason TopReiter - Óskahringur frá Miðási
  18. Viðar Bragason Efri-Rauðalækur/Lífland -     Sísí frá Björgum

Fleiri fréttir