Ár á Norðurlandi vatnsmiklar

Mjög mikið vatn er í ám á Norðurlandi og Austurlandi. Óvenjulega mikið rennsli er í Skjálfandafljóti og í Vestari- og Austari-Jökulsá, að því er fram kemur á mbl.is í dag. Er haft eftir Kristjönu Eyþórsdóttur, sérfræðingi hjá Veðurstofunni, að ástæðan sé mikil snjóalög á Norðurlandi eftir veturinn og mikil hlýindi síðustu daga.

Samkvæmt mælum Veðurstofunnar er óvenjulega mikið rennsli í Vestari- og Austari-Jökulsá, Svartá, Laxá við Helluvað, Skjálfandafljóti og Geithellnaá á Austurlandi.

Fleiri fréttir