Árangursrík kræklingarækt á Hvammstanga
Tilraunarækt á kræklingi hófst í Miðfirði í fyrrasumar og er verkefnið samstarfsverkefni nokkurra aðila á Hvammstanga og BioPol ehf. á Skagaströnd. Verkefnið er styrkt af Vaxtarsamningi Norðurlands Vestra.
Línurnar voru settar í sjó í lok júlí 2010 og á þeim tíma hefur vaxið í þeim mikið af skel. Þær stærstu eru á bilinu 3-4 sm og þykir það mjög gott. Næstu skref í ræktunarferlinu er að hreinsa skelina af línunum, stærðarflokka þær og setja í svokallaða ræktunarsokka. Með því næst hámarks nýting og minni afföll.
BioPol hefur umsjón með því að fylgjast með umhverfisþáttum og sýnatöku. Í því felst að fylgjast með hitastigi, seltu og magni þörunga. Einnig hafa þeir vaktað stærð og magn kræklingalirfa í sjó, sem er nauðsynlegt til að áætla rétta tímann til að setja út línur.
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu BioPol ehf.