Árleg karlareið á Svínavatni
Árleg karlareið á Svínavatni verður laugardaginn 8. mars en þá verður riðið eftir endilöngu vatninu sem er liðlega 10 km langt og 1-2 km breitt. Mæting er við Dalsmynni kl. 14:00.
Á heimasíðu Hestamannafélagsins Þyts kemur fram að áð verður á nokkrum stöðum á leiðinni þar sem búið verður að koma fyrir einhverju góðgæti fyrir bæði hross og menn.
„Veðurspáin er góð og ekkert til fyrirstöðu annað en að skella sér með í þessa einstöku karlareið á Svínavatni. Að ferðinni lokinni verður haldið í Reiðhöllina þar verður grillað, sungið og spaugað,“ segir á heimasíðunni.
Verð er kr. 2.500 kr. fyrir manninn. Skráning í ferðina er á brekka26@simnet.iseða hjá Hirti 861-9816, Hilmari í 848-0033, Guðmundi 848-1775. Ekki seinna en á fimmtudagskvöld 6.mars.
„Allir velkomnir og vonumst til að sjá sem flesta,“ segir á heimasíðunni.