Árlegt flipp íþróttamót Höfðaskóla
Í gær, miðvikudaginn 29. maí, var haldið hið árlega ,,Flipp” íþróttamót í Höfðaskóla á Skagaströnd. Fulltrúar úr hverjum bekk voru valdir til að keppa í margvíslegum þrautum.
M.a. var keppt í stígvélakasti, boðhlaupi, möndluspýtingu, spjaldakapphlaupi, limbó, húlla, kappáti og fl.
Í A riðli voru 1. – 4. bekkur, í B riðli voru 5. – 7. bekkur og í C riðli voru 8. – 10. bekkur.
Úrslitin voru á þann veg að í A riðli urðu 4. bekkingar efstir. Í B riðli var jafntefli hjá 6. og 7. bekk, draga þurfti um hvor bekkurinn fengi bikarinn og var það 7. bekkur sem vann hlutkestið. Í C riðli urðu 9. bekkingar efstir.
Dagurinn gekk vel fyrir og stóðu nemendur sig með miklum sóma.Höfðaskóli.is segir frá þessu.
Hér er hægt að skoða myndir af mótinu.