Arnar Freyr Arnarsson valinn í handboltalandsliðið

Arnar var í viðtali í 32. tölublaði Feykis fyrr á þessu ári. Hér er hann ásamt systkinum sínum. Aðsend mynd.
Arnar var í viðtali í 32. tölublaði Feykis fyrr á þessu ári. Hér er hann ásamt systkinum sínum. Aðsend mynd.

Arnar Freyr Arnarsson, sonur Arnars Þórs Sævarssonar sveitarstjóra Blönduósbæjar, hefur verið valinn í karlalandslið Íslands í handknattleik sem tekur þátt í mjög sterku alþjóðlegu móti í Noregi sem hefst á morgun.

Mótið, sem nefnist Gulldeildin, er mjög sterkt en þar munu ásamt Íslandi spila Frakkland, Noregur og Danmörk. Arnar Freyr var einn af máttarstólpum U19 liðsins og er hann nú verðlaunaður fyrir þann árangur með sæti á stóra sviðinu, eins og sagt er frá á huna.is.

Í viðtali við Aron Kristjánsson, þjálfara karlalandsliðsins, sagði hann tækifæri leynast í þessum ungu leikmönnum sem nú fá tækifæri í hjarta varnarinnar og það mætti eiga von á mestu breytingunum þar. Þrír aðrir ungir leikmenn koma til með að spila sína fyrstu A-landsleiki gegn þessum mögnuðu landsliðum í handbolta.

Fleiri fréttir