Arnar Már Elíasson ráðinn forstöðumaður fyrirtækjasviðs Byggðastofnunar
Fyrir skömmu var auglýst starf forstöðumanns fyrirtækjasviðs Byggðastofnunar. Alls bárust 20 umsóknir og hefur Arnar Már Elíasson verið ráðinn í starfið. Á vef Byggðastofnunar segir að Arnar Már hafi mikla reynslu af banka og útlánastarfsemi þar sem hann hafi starfað hjá Íslandsbanka og sem lánastjóri og fyrirtækjafulltrúi hjá SPRON.
Arnar Már er fæddur árið 1979, með B.A gráðu í hagfræði frá Winthrop University í Bandaríkjunum. Í starfi sínu hjá Íslandsbanka er hann viðskiptastjóri í útibúi bankans í Hafnarfirði og veitir fyrirtækjasviði forstöðu auk þess að vera staðgengill útibússtjóra.
Arnar er giftur Aldísi Hilmarsdóttur aðstoðaryfirlögregluþjóni hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og eiga þau tvo drengi, 7 og 9 ára. Þau munu flytja á Sauðárkrók á næstu vikum en Arnar Már mun hefja störf á Byggðastofnun í byrjun nóvember.