Árni Gunn frumsýnir tvær myndir í Bifröst
„Við frumsýnum Ævintýri á hestbaki í Bifröst á Sauðárkróki næsktkomandi mánudag, kl. 17:00 og svo er önnur sýning kl. 20 um kvöldið. Vegur 75 um Tröllaskarð verður sýndur með sama hætti daginn eftir, þriðjudaginn 17. nóvember,“ segir Árni Gunnarsson kvikmyndagerðarmaður í spjalli við Feyki. Myndirnar voru fyrst sýndar á RIFF í október en nú er um að gera að skella sér í bíó í Bifröst.
Í Ævintýri á hestbaki er fylgst með knapanum Þórgunni Þórarinsdóttur um árabil eða frá því að hún var 15 ára stelpa í hesthúsunum á Króknum, þar til að hún fimm árum síðar keppir erlendis á sínu fyrsta heimsmeistaramóti í hestaíþróttum. Vegur 75 um Tröllaskarðsegir magnaða sögu af viðskiptum Vegagerðarinnar við óvænt öfl þegar vegur var lagður um Tröllaskarð í Hegranesi. Ólíkar myndir en báðar afar forvitnilegar.
Þú sýndir myndirnar á RIFf, hvernig voru viðtökur? Við sýndum ævintýri á hestbaki og veg 75 um Tröllaskarð á RIF í október. Viðtökurnar voru mjög góðar og síðan þá höfum við fengið fjölda fyrirspurna um það hvenær myndinar verði sýndar aftur.
Var eitthvað sem kom þér á óvart í sambandi við sýningarnar þar? „Þetta eru tvær ólíkar heimildamyndir. Ævintýri á hestbaki er um unga stúlku sem er að keppa við þá bestu í hestaíþróttum og Vegur 75 fjallar um samskipti manna og huldra afla – eða anda af öðrum heimi. Og það sem kemur kannski skemmtilega óvart er hve áheyrendahópurinn að þessum myndum er ólíkur.“
Verða myndirnar sýndar í sjónvarpi? „Það lítur ekki út fyrir það eins og staðan er akkúrat núna. Þetta eru myndir sem eiga í raun og veru heima í dagskrá RÚV en innlenda dagskrárdeildin hefur svarað okkur því að RÚV sjái sér ekki fært að kaupa sýningarréttinn að svo stöddu. Það verður bara að koma í ljós hvar þær verða sýndar opinberlega og ég vona að það skýrist fljótlega,“ segir Árni.
