Allir fjallvegir á Norðurlandi vestra lokaðir vegna veðurofsans

Færð á vegum nú um klukkan 20:30 í kvöld. SKJÁSKOT AF UMFERÐIN.IS
Færð á vegum nú um klukkan 20:30 í kvöld. SKJÁSKOT AF UMFERÐIN.IS

Það er hundleiðinlegt vonskuveður sem stendur á Norðurlandi vestra og í raun ekki hundi út sigandi. Vegirnir yfir Öxnadalsheiði, Vatnsskarð, Þverárfjall og Holtavörðuheiði eru lokaðir vegna veðurs og sömuleiðis vegurinn um Langadal. Vindur er víða á svæðinu yfir 20 m/sek og hátt í 40 m/sek í kviðum.

Á vef RÚV er sagt frá því að nánast allar björgunarsveitir frá Hrútafirði til Skagafjarðar hafi verið kallaðar út á einhverjum tímapunkti seinni partinn í dag. Þetta er haft eftir Jóni Þór Víglundssyni upplýsingafulltrúa Landsbjargar.

„Björgunarsveitin hefur sinnt verkefnum víða í dag vegna veðursins, þá sérstaklega á Norðvesturlandi og á Vestfjörðum. Fyrir skemmstu var björgunarsveit kölluð út til að aðstoða ökumenn á Bröttubrekku.

Margir hafa þurft á aðstoð björgunarsveitar að halda eftir að lenda í vandræðum við akstur, langflestir frá Holtavörðuheiði og inn í Skagafjörð.

Jón Þór segist vona að flestir sem hafi verið á ferðinni séu komnir á leiðarenda. Skynsamlegast sé að halda kyrru fyrir.“

Þá segir frá því að fimm bílar og rúta hafi setið föst á Vatnsskarði nú undir kvöld. „Lögreglan á Norðurlandi vestra losaði bílana fyrir skömmu og rútan er komin í Varmahlíð.“ Þetta sagði Pétur Björnsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Norðurlandi vestra fyrir um klukkutíma.

RÚV er sannarlega með puttann á púlsinum því þar er þess getið að áhrifavaldurinn Patrekur Jamie sitji fastur á Blönduósi en hann las ekki fréttir áður en hann lagði af stað frá Reykjavík til Akureyrar í dag. Lenti því alveg óvænt í óveðri. Hann ku vera kominn með húsaskjól á Blönduósi.

Fleiri fréttir