Óttast var að allt að 400 fjár hefði fennt
Nú snemma í morgun voru björgunarsveitir kallaðar út til aðstoðar bónda suður af Blönduósi. Í tilkynningu frá Landsbjörg segir að bóndinn hafi óttast að allt að 400 fjár hefði fennt um nóttina. Þegar lögregla kom á staðinn varð ljóst að svo alvarlegt var ástandið ekki.
Tilkynningin barst fjölmiðlum nú skömmu fyrir klukkan tíu frá upplýsingafulltrúa Landsbjargar en þá var búið að grafa yfir 120 fjár úr fönn.
Nú um klukkan tíu á laugardagsmorgni voru flestir vegir á Norðurlandi vestra orðnir færir en Öxnadalsheiði var enn lokuð vegna óveðurs. Hálka er víðast hvar annarsstaðar á vegum á svæðinu en í Langadal og á Svínvetningabraut í Austur-Hún er snjóþekja á vegum og sömu sögu er að segja um Útblönduhlíð í Skagafirði. Úrkomulaust er á svæðinu að mestu en enn er nokkur vindur víða.
