Ársfundur Byggðastofnunar á föstudaginn

Ársfundur Byggðastofnunar verður haldinn á föstudaginn kemur. Mynd: BÞ
Ársfundur Byggðastofnunar verður haldinn á föstudaginn kemur. Mynd: BÞ

Ársfundur Byggðastofnunar verður haldinn föstudaginn 15. apríl 2016 í Miðgarði í Skagafirði. Á ársfundinum er fjölbreytt dagskrá og þar verður meðan annars veitt hin árlega viðurkenning Landstólpinn.

Dagskrá ársfundar:

Kl. 13:00 Setning fundarins – Herdís Á Sæmundardóttir

Kl. 13:05 Ávarp sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra

Kl. 13:15 Ræða formanns stjórnar Byggðastofnunar - Herdís Á Sæmundardóttir

Kl. 13:30 Skýrsla forstjóra Byggðastofnunar - Aðalsteinn Þorsteinsson

Kl. 13:45 Afhending „Landstólpans“ samfélagsviðurkenningar Byggðastofnunar

Kl. 14:00 State of the Nordic Region 2016 – Julien Grunfelder, sérfræðingur hjá Nordregio kynnir skýrsluna og fer m.a. yfir sérstöðu Íslands samanborið við hin norrænu löndin.

Kl. 14:40 Kynning verkefna í byggðaáætlun

  • Hvert sækja íbúar þjónustu – kynning á niðurstöðum þjónustukönnunar á Norðurlandi vestra – Sigríður Elín Þórðardóttir
  • Aðgengi að heilbrigðisþjónustu á Íslandi – kynning á niðurstöðum greiningarvinnu Nordregio og Byggðastofnunar – Guðmundur Guðmundsson
  • Þróun atvinnutekna eftir atvinnugreinum og landssvæðum 2008-2015 – kynning á gögnum Hagstofu Íslands – Sigurður Árnason og Guðmundur Guðmundsson

Kl. 15:25 Rannsókn á samstarfi sveitarfélaga. Verkefni styrkt af Byggðarannsóknarsjóði – Arnar Þór Jóhannesson sérfræðingur hjá RHA.

Kl. 15:45 Veiting styrkja úr Byggðarannsóknarsjóði – Herdís Á Sæmundardóttir formaður stjórnar Byggðastofnunar.

Allir velkomnir

Fleiri fréttir