Árshátíð Blönduskóla í kvöld

Árshátíð Blönduskóla verður haldin í kvöld, föstudagskvöldið  14. febrúar, í Félagsheimilinu á Blönduósi. Húsið opnar klukkan 19:30. Árshátíðin hefst klukkan 20:00. Dagskrá hefst með ávarpi talsmanns unglingaráðs. Næst verður sýnt leikritið „Þú ert í blóma lífsins, fíflið þitt” í leikstjórn Jófríðar Jónsdóttur.

Eftir leikritið verða glæsilegar kaffiveitingar og svo verður hin frábæra söngkeppni Blönduvision sem allir bíða spenntir eftir. Undirleikur er í höndum nokkurra nemenda úr elstu bekkjum skólans. Eins og venjulega verður happdrætti. Að lokinni skemmtidagskrá fer fram dansleikur þar sem hinn frábæri plötusnúður Dj. Knutsen spilar fyrir dansi. Sagt er frá þessu á heimasíðu Blönduskóla.

Vonast er til að sem flestir komi því lofað er frábærri skemmtun eins og alltaf!

Fleiri fréttir