Árskólakrakkar léku við erlenda leikmenn Tindastóls í frímínútunum

Leikmenn meistaraflokka Tindastóls, ásamt þjálfurunum Friðriki Hrafni og Jan Bezica, léku sér í körfubolta með krökkunum í Árskóla í morgun. Mikil mildi þótti að hægt var að fá þau til að standa kyrr rétt á meðan smellt var af myndavelinni. Mynd: PF.
Leikmenn meistaraflokka Tindastóls, ásamt þjálfurunum Friðriki Hrafni og Jan Bezica, léku sér í körfubolta með krökkunum í Árskóla í morgun. Mikil mildi þótti að hægt var að fá þau til að standa kyrr rétt á meðan smellt var af myndavelinni. Mynd: PF.

„Við erum með smá kynningu á körfuboltanum í Skagafirði og sýna erlendu leikmennina í meistaraflokkum karla og kvenna og reyna að fá smá tengingu milli krakka og leikmanna og vera góðar fyrirmyndir fyrir þessa krakka,“ segir Friðrik Hrafn Jóhannsson, en hann, Jan Bezica, þjálfari kvennaliðsins, ásamt erlendu körfuknattleikmönnunum mættu í frímínútur í Árskóla á Sauðárkróki í morgun til að lífga upp á íþróttastarfið, skapa smá skemmtun og hafa gaman.

Það var ekki annað að sjá en að allir skemmtu sér vel og leikmennirnir hafi fengið mikla athygli unga fólksins sem sýndi hvað í því býr. Skotið var á körfu og svo var tekinn einn léttur leikur með óvenju mörgum í byrjunarliðunum.

Friðrik Hrafn er þriðji þjálfari meistaraflokks karla, þjálfar yngri flokka í körfunni ásamt því að þjálfa í frjálsum íþróttum. Hann segist þekkja krakkana vel enda einnig unnið í Árskóla sem stuðningsfulltrúi áður. Þá hafi hann einnig verið flokksstjóri í unglingavinnunni. „Þannig að maður þekkir þessa krakka og gaman að geta tengt þetta þannig að þau sjá hvað er gaman að vera í íþróttum,“ segir hann.

En nú er boltinn að fara að rúlla á körfuboltavellinum þar sem kvennalið Tindastóls leikur gegn Stjörnunni í Mathús Garðabæjar-höllinni í bikarkeppni kvenna í kvöld klukkan 19:15. Bæði lið leika í 1. deildinni en þar eiga Stólastúlkur sinn fyrsta leik þann 2. október gegn Hamri-Þór.

Strákarnir taka hins vegar á móti Álftanesi á morgun í bikarkeppni karla en fyrsti leikur liðsins í úrvalsdeildinni verður háður 8. október gegn Val í Síkinu. Friðrik Hrafn segir liðið líta mjög vel út og er bjartsýnn á gengi þess í vetur. „Miðað við æfingar er þetta mjög þéttur hópur og lítur vel út. Mjög spennandi tímar framundan,“ segir hann að lokum.

 

 

Fleiri fréttir