Ástand túna misjafnt á milli svæða
Útlit er fyrir betri heyuppskeru í Skagafirði þetta sumarið en í fyrra samkvæmt Eiríki Loftssyni ráðunauti hjá Leiðbeiningarmiðstöðinni í Skagafirði. „Það sem af er hefur uppskeran verið þokkaleg og eru það ný tún og mýrlendi sem hafa verið að koma best út,“ segir Eiríkur en það eru fyrst og fremst kúabændur sem hafa verið í heybúskap.
Ólíkt og í fyrra þá segir Eiríkur hlýindin í sumar hafa gert gæfumuninn. „Túnin eru auðvitað í misjöfnu ásigkomulagi, meira hefur rignt til fjalla en þurrara er í útsveitum, t.d. út á Skaga, Fljótum, Viðvíkursveit og Hegranesi, en útlitið er almennt þokkalegt,“ segir Eiríkur.
Ekki er sömu söguna að segja úr Húnaþingi en þar hefur rignt jafnvel minna en í Skagafirði. Samkvæmt Eiríki hefur jarðvegurinn þar mikið að segja, t.d. í Hrútafirði er hann mjög þunnur en þar er ástandið sérlega slæmt.
Rúv.is greindi frá því að miklir þurrkar valda bændum í Húnaþingi áhyggjum en þar hefur lítil grasspretta verið og sláttur því ekki kominn á fullt, eins og annars væri á þessum árstíma. Að sögn Gunnars Ríkharðssonar, framkvæmdastjóra Búnaðarsambands Húnaþings og Stranda, eru tún víða orðin brún og ljót. Stór hluti Hrútafjarðar sé einn gulur fláki yfir að líta.
Gunnar segir að á sumum bæjum er stærsti hluti túnanna illa farinn vegna þurrkanna og útlit því ekki gott með heyfeng þar í ár. Þrátt fyrir að vor síðustu ára hafi verið óvenju þurr hafi ástandið aldrei verið svo slæmt, segir Gunnar. Nokkrar áhyggjur eru því af heyforða á svæðinu fyrir næsta vetur vegna þessa.