Átelur harðlega lokun neyðarbrautar
Sveitarstjórn Húnavatnshrepps átelur harðlega lokun suð-vestur flugbrautar Reykjavíkurflugvallar sem kölluð er neyðarbraut. Þetta kemur fram í ályktun sem Magnús Sigurðsson lagði fram á sveitarstjórnarfundi á miðvikudaginn og samþykkt var samhljóða af sveitarstjórn.
Í ályktuninni segir að Reykjavíkurborg, sem er höfuðborg landsins, sýni mikið metnaðar- og ábyrgðarleysi gagnvart landsbyggðafólki í neyðartilfellum sjúkraflugs. Ákvörðun borgarstjórnar Reykjavíkur um lokun neyðarbrautar í Vatnsmýrinni hefur verið mótmælt víða og sérstaklega af íbúum landsbyggðarinnar og bent á að lending á svokallaðri neyðarbraut hafi skipt sköpun varðandi sjúkraflug utan af landi.