Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna forsetakjörs 1. júní 2024

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna forsetakjörs þann 1. júní 2024 stendur yfir.

Minnt er á að opið verður til kl. 18:00 á skrifstofum embættisins að Hnjúkabyggð 33, Blönduósi og Suðurgötu 1, Sauðárkróki, fimmtudaginn 29. maí nk.

Á kjördag 1. júní nk. verður opið á báðum skrifstofum milli kl. 11:00 – 15:00.

Almennur opnunartími á kjörstöðum utan kjörfundar innan umdæmisins er eftirfarandi:

  • Blönduósi, aðalskrifstofu, Hnjúkabyggð 33, Blönduósi, virka daga, kl. 09:00 - 15:00.
  • Sauðárkróki, sýsluskrifstofu, Suðurgötu 1, Sauðárkróki, virka daga, kl. 09:00 - 15:00.
  • Hvammstanga, ráðhúsi Húnaþings vestra að Hvammstangabraut 5, Hvammstanga, mán - fim kl. 09:00 - 16:00 og fös kl. 09:00 - 12:00.
  • Skagaströnd, stjórnsýsluhúsi að Túnbraut 1-3, Skagaströnd, virka daga kl. 10:00 - 12:00 og 13:00 - 15:00.

Atkvæðagreiðsla í heimahúsi:

Kjósandi, sem vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar, getur hvorki sótt kjörfund né kosið utan kjörfundar, getur óskað þess að greiða atkvæði í heimahúsi. Skrifleg umsókn, studd vottorði lögráða manns um hagi kjósandans, skal hafa borist kjörstjóra eigi síðar en kl. 10:00 fimmtudaginn 30. maí. Mælst er til að beiðnir þessa efnis berist kjörstjóra án ástæðulauss dráttar.

Ábyrgð á atkvæði:

Athygli er vakin á því að kjósandi ber sjálfur ábyrgð á að koma atkvæði til skila, kjósi hann utan kjörfundar hjá kjörstjóra í umdæmi sýslumanns þar sem hann á ekki lögheimili. Nægjanlegt er að koma bréfi með utankjörfundaratkvæði í einhverja kjördeild þess kjördæmis þar sem kjósandinn er á kjörskrá. Kjörstjóri annast póstsendingu atkvæðis að beiðni kjósanda. Allir kjósendur, sem greiða atkvæði utan kjörfundar á kjördag, bera sjálfir ábyrgð á að koma atkvæði sínu til skila.

Kjósendur skulu framvísa persónuskilríkjum við kosninguna (ökuskírteini, vegabréfi eða nafnskírteini).

Vakin er athygli á að unnt er að kjósa utan kjörfundar á skrifstofum sýslumanna um land allt.

Ýmsar upplýsingar og eyðublöð vegna komandi kosninga má fá á vefsíðunni www.kosning.is.

Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir