Átta laxar á land í Blöndu í gær
Í gær var opnað fyrir veiði í Blöndu og endaði dagurinn með 8 lönduðum löxum. Fyrsta vaktin skilaði 6 löxum á land en samkvæmt vef Lax-á telst það bærileg opnunarvakt. Laxarnir voru allir á bilinu 10 -14 pund, feitir og pattaralegir.
Á seinni vaktinni var 2 löxum landað og einnig misstu veiðimenn 2 til viðbótar, sem fyrr voru laxarnir á milli 10 og 14 pund. Af þessum 8 voru fjórir teknir á maðkinn og hinir fjórir á fluguna.
Veiðum var hætt óvenju snemma í gær enda bálhvasst og skítakuldi eins og segir á Lax-á.is en þar er hægt að fylgjast með fréttum af veiði og veiðimönnum.