Átta umsóknir bárust um stöðu svæðisstjóra 

Umsóknarfrestur vegna stöðu Svæðisstjóra RÚVAK hjá Ríkisútvarpinu rann út á þann 1. september sl.  og samkvæmt fréttatilkynningu frá RÚV bárust alls átta umsóknir um stöðuna.

Auglýst var eftir kraftmiklum og hugmyndaríkum einstaklingi með frétta- og stjórnunarreynslu til að leiða breytingar til að leggja aukna áherslu á landsbyggðina. Hér fyrir neðan sjá lista yfir nöfn umsækjenda:

  • Björn Þorláksson - Ritstjóri og rithöfundur
  • Freyja Dögg Frímannsdóttir - Verkefnastjóri
  • Hulda Sif Hermannsdóttir - Verkefnastjóri viðburða og menningarmála Akureyrarstofu
  • Ingibjörg Ingadóttir - Framhaldsskólakennari og meistaranemi
  • Kristján Atli Baldursson Dýrfjörð - Sýningarstjóri
  • Sigurður Einarsson - Framkvæmdastjóri Félags eldri borgara í Reykjavík
  • Sveinn H. Guðmarsson    - Fréttamaður
  • Óli Örn Andreassen - Dagskrárgerðarmaður

„RÚV ætlar að efla starfsemi sína á landsbyggðinni á næstu misserum. Framundan er vinna við endurskipulagningu, þróun og uppbyggingu til framtíðar á starfsemi RÚV utan höfuðborgarsvæðisins. Svæðisstjóri RÚVAK mun leiða þær breytingar sem framundan eru á starfsemi RÚV á landsbyggðinni.

RÚV er með fréttamenn og fréttaritara í öllum landshlutum en starfsfólki RÚV á landsbyggðinni hefur fækkað umtalsvert á síðustu árum. Ný yfirstjórn RÚV hefur boðað að aukin áhersla verði lögð á landsbyggðina í starfsemi RÚV. Endurskipulagning starfseminnar á Akureyri er fyrsta skrefið í þá átt,“ segir loks í fréttatilkynningunni.

Fleiri fréttir