Átta verkefni á Norðurlandi vestra fá styrk úr Safnasjóði
Mennta- og menningarmálaráðherra hefur úthlutað styrkjum úr Safnasjóði að fenginni umsögn safnaráðs. Úr aðalúthlutun var úthlutað 111 styrkjum til eins árs til 48 aðila að upphæð 139.543.000 króna. Auk þess voru veittir 13 Öndvegisstyrkir til viðurkenndra safna að upphæð 110.400.000 til þriggja ára.
Þrjú söfn á Norðurlandi vestra fengu styrk til átta verkefna, alls 9,5 milljónir króna, og skiptast þeir þannig.
Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna Skráning í Skarp kr. 3.000.000,-
Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi Skráning – myndskráning kr. 900.000,-
Íslenska lopapeysan – vefsýning kr. 500.000,-
Sumarsýning – sérsýning kr. 400.000,-
Styrkjandi forvarsla kr. 600.000,-
Byggðasafn Skagfirðinga Samstarf safna á Norðurlandi vestra kr. 800.000,-
Safn og samfélag kr. 1.800.000,-
Heildaryfirsýn yfir safnkost kr. 1.500.000,-
Nánar má lesa um úthlutun safnasjóðs 2020 hér.