Auðveldara að tala um kynlíf eftir áhorf á Fáðu Já!
SAFT (samfélag, fjölskylda og tækni) stóð fyrr á árinu fyrir gerð könnunar á netnotkun barna og unglinga hér á landi. Markmið könnunarinnar er að afla upplýsinga um notkun barna og unglinga á netinu og nýta í kjölfarið þær upplýsingar til vitundarvakningar um möguleika netsins og örugga netnotkun barna og unglinga. Capacent Gallup sá um framkvæmd könnunarinnar og úrvinnslu niðurstaðna. Miklum meirihluta 10. bekkinga finnst myndin Fáðu Já! áhugaverð
Niðurstöður könnunarinnar verða kynntar enn frekar á næstu vikum. Meginviðfangsefni SAFT könnunarinnar er að kortleggja notkun barna og unglinga á netinu og öðrum skyldum miðlum. Sambærilegar kannanir undir merkjum SAFT hafa verið gerðar hér á landi árin 2003, 2007 og 2009 og líkt og áður voru nú lagðar spurningar fyrir bæði börn og foreldra. Framkvæmdin í ár var þó með töluvert breyttu sniði frá því áður og niðurstöðurnar því ekki fyllilega samanburðarhæfar við fyrri mælingar á öllum þáttum.
Ísland er aðili að samningi Evrópuráðsins um varnir gegn kynferðislegri misnotkun og kynferðislegri misneytingu gegn börnum. Frá því í nóvember 2011 hefur verkefnisstjórn með fulltrúum úr innanríkisráðuneyti, mennta- og menningarmálaráðuneyti og velferðarráðuneyti unnið að vitundarvakningu um kynferðislegt ofbeldi gegn börnum í samræmi við ákvæði í samningnum. Fáðu já! (sjá http://faduja.is/) er eitt þeirra verkefna sem Vitundarvakning hefur látið gera. Fáðu já! er 20 mínútna stuttmynd sem er ætlað að skýra mörkin milli kynlífs og ofbeldis, vega upp á móti áhrifum klámvæðingar, brjóta ranghugmyndir á bak aftur og innræta sjálfsvirðingu í nánum samskiptum. Myndin er gerð með aldurshópinn 15 – 18 ára í huga. Hún var frumsýnd í janúar 2013 í velflestum grunn- og framhaldsskólum landsins. Í SAFT könnuninni voru 10. bekkingar beðnir um að meta myndina Fáðu Já! auk þess sem reynt var að leggja mat á áhrifamátt hennar með nokkrum spurningum.
Miklum meirihluta 10. bekkinga finnst myndin Fáðu Já! áhugaverð
Tæplega 95% barna í 10. bekk höfðu séð Fáðu já!
Miklum meirihluta þeirra sem séð höfðu myndina Fáðu já! fannst hún áhugaverð. Rúmlega 77% þeirra gáfu myndinni einkunn á bilinu 8-10 , á kvarðanum 1-10 þar sem 1 þýddi alls ekki áhugaverð og 10 mjög áhugaverð. Fimmtungur gaf myndinni einkunn á bilinu 5-7 og tæpum 3% fannst myndin alls ekki áhugaverð og gáfu henni einkunnina 1.
Tæplega 66% þeirra barna sem séð höfðu Fáðu já! fannst þau skilja betur, eftir að hafa séð myndina, muninn á kynlífi í raunveruleikanum og kynlífi sem sýnt er í kvikmyndum og klámi. Rúmlega 26% fannst þau skilja þennan mun mikið betur og tæplega 40% nokkuð betur en áður en þau sáu myndina. Sléttum 34% fannst myndin ekki breyta neinu þar um.