Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvóta til fiskiskipa
Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa og er umsóknarfrestur til og með 10. apríl 2012. Umsóknum skal skilað til Fiskistofu á eyðublaði sem má finna hér.
Umræddur byggðakvóti er fyrir eftirtalin byggðarlög skv. ákvæðum reglugerðar nr. 1182/2011 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2011/2012:
Kaldrananeshreppur (Drangsnes)
Akureyri (Grímsey)
Auk reglugerðarinnar er vísað til sérstakra úthlutunarreglna í neðanskráðum byggðalögum sbr. auglýsingu nr. 297/2012 í Stjórnartíðindum:
Blönduósbær (Blönduós)
Sveitarfélagið Skagaströnd
Fjallabyggð (Siglufjörður, Ólafsfjörður)
Sveitarfélagið Vogar
Vesturbyggð (Brjánslækur, Bíldudalur)
Árneshreppur
Strandabyggð (Hólmavík)
Akureyri (Hrísey)
Grýtubakkahreppur (Grenivík)
Vopnafjarðarhreppur (Vopnafjörður)