Auglýst eftir rekstraraðilum fyrir Fellsborg

Sveitarfélagið Skagaströnd auglýsir á vef sínum eftir rekstraraðilum fyrir Félagsheimilið Fellsborg og afgreiðslu skólamáltíða fyrir Höfðaskóla fyrir komandi haust. Umsóknum skal skilað á skrifstofu Sveitarfélagsins Skagastrandar fyrir 29. júlí næstkomandi þar sem m.a. komi fram hugmyndir umsækjanda um fyrirkomulag og einingaverð skólamáltíða, en um er að ræða hádegisverð bæði fyrir nemendur og starfsfólk yfir skólaárið.

Umsóknum skal skila rafrænt á netfangið sveitarstjori@skagastrond.is. Öllum umsóknum verður svarað, að því er segir í auglýsingu á vef Skagastrandar.

Frekari upplýsingar veitir sveitarstjóri á netfanginu sveitarstjori@skagastrond.is.

/huni.is

Fleiri fréttir