Auglýst eftir umsóknum um styrki
Vaxtarsamningur Norðurlands vestra óskar eftir umsóknum um styrki en umsóknarfrestur er til kl. 17:00, föstudaginn 17. febrúar 2012. Sótt er um með rafrænum hætti á eyðublöðum sem fást á vefsíðunni: http://www.ssnv.is þar sem nálgast má úthlutunarreglur og nánari upplýsingar.
Áherslur Vaxtarsamnings Norðurlands vestra 2011 – 2013 lúta einkum að uppbyggingu samstarfs og framgangi rannsókna og vöruþróunar á eftirfarandi sviðum:
- • Ferðaþjónustu og menningartengdum verkefnum.
- • Auðlindalíftækni og uppbyggingu þekkingarsetra.
- • Matvælum
- • Sameiginlegum verkefnum sem unnin eru með öðrum vaxtarsamningum í landinu og/eða verkefnum innan þeirra.
Að auki er horft sérstaklega til verkefna sem:
- • Vel eru til þess fallin að stuðla að fjölbreyttari atvinnutækifærum fyrir konur og ungt fólk á svæðinu.
- • Stuðla að nýtingu auðlinda svæðisins til atvinnusköpunar á Norðurlandi vestra.
- • Stuðla að virðisaukningu á sviði matvælaframleiðslu.
Styrkupphæð getur að hámarki numið kr. 6.000.000 og stuðningur við verkefnið getur verið allt að 50% af áætluðum heildarkostnaði þess. Gerður er sérstakur verksamningur um framkvæmd verkefna sem hljóta stuðning, þar er nánar kveðið á um framvindu, greiðslur og tímasetningar.
Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vel úthlutunarreglur og önnur gögn varðandi samninginn. Hægt er að nálgast nánari upplýsingar HÉR