Auglýst eftir umsóknum um viðbótaraflamark
Byggðastofnun mun næstu fimm fiskveiðiár hafa til ráðstöfunar aflaheimildir sem nema 1.800 þorskígildislestum til að styðja byggðarlög í alvarlegum og bráðum vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi. Á vef stofnunarinnar segir að búið sé að móta viðmið um úthlutun veiðiheimilda samkvæmt samþykki Alþingis frá 25. júní sl..
Meginmarkmið verkefnisins er að auka byggðafestu í þeim sjávarbyggðum sem standa frammi fyrir alvarlegum og bráðum vanda vegna skorts á aflaheimildum eða óstöðugleika í sjávarútvegi, eru háðastar sjávarútvegi og eiga minnsta möguleika á annarri atvinnuuppbyggingu eða eru fámennar, fjarri stærri byggðakjörnum og utan fjölbreyttra vinnusóknarsvæða.
Í því skyni er stefnt að uppbyggingu í sjávarútvegi sem skapar eða viðheldur sem flestum heilsársstörfum fyrir bæði konur og karla við veiðar, vinnslu og afleidda starfsemi í viðkomandi sjávarbyggðum, stuðlar að sem öflugastri starfsemi í sjávarútvegi til lengri tíma og dregur sem mest úr óvissu um framtíð sjávarbyggðanna.
Stjórn Byggðastofnunar hefur á grundvelli greiningar á stöðu einstakra byggðarlaga ákveðið að auglýsa eftir samstarfsaðilum um nýtingu viðbótaraflaheimilda til að stuðla að meginmarkmiðum verkefnisins í eftirtöldum sjávarbyggðum sem falla að ofangreindum viðmiðum;
Breiðdalsvík í Breiðdalshreppi, Drangsnes í Kaldrananeshreppi, Flateyri í Ísafjarðarbæ, Raufarhöfn í Norðurþingi, Suðureyri í Ísafjarðarbæ og Tálknafjörður í Tálknafjarðarhreppi.
Sjá nánar HÉR