Aukið netöryggi í Húnavatnshreppi
Vonir standa til að nýtt þráðlaust netkerfi, sem sett verður upp í Húnavatnshreppi a komandi mánuðum, muni auka netöryggi íbúanna. Í sumar samdi sveitarfélagið um uppsetningu á svokölluðu TDMA-kerfi, en það er þráðlaust net sem á að ná til um níutíu bæja og áætlað er að uppsetningu ljúki í haust, að því er fram kemur í viðtali við Jens P. Jensen, sveitarstjóra Húnavatnshrepps, á vef Ríkisútvarpsins.
Þar segir Jens P. Jensen sveitarstjóri að þráðlausa kerfið sem nú er notast við sé löngu úrelt. „Netsambandið hefur verið mjög slæmt. Bilanatíðni hefur verið mikil í kerfinu. Þessi búnaður sem við erum með hefur alls ekki verið nógu góður. Þetta er eiginlega eina ráðið sem við sjáum til að reyna að bæta úr þessu,“ segir Jens. Hann segir einnig að Húnavatnshreppur sé að leggja eitthvað á milli fjórar og fimm milljónir í verkefnið sem sé um helmingur af kostnaði við uppsetningu.
Daníel Gunnarssonar hjá eMax, sem setur upp og rekur kerfið, segir að hraðinn í eldra kerfinu sé frá fjórum til átta megabita á sekúndu en nýja kerfið geti náð allt að þrjátíu megabitum. Eldra kerfið, sem er enn í notkun í mörgum sveitum, sé á sömu tíðni og mörg önnur rafeindatæki og það trufli sambandið. Nýja kerfið sé því stöðugra.
Á vef RÚV segist Jens binda miklar vonir við breytinguna. „Það er búið að setja þetta kerfi upp í Kjósinni og eftir því sem ég hef séð þá er bara mikil ánægja með þetta þar. Ég vonast til að það verði sama hér.“