Aukið svigrúm til kennslu í tónlistarskólum

Mynd: Pexels.com.
Mynd: Pexels.com.

Heilbrigðisráðherra hefur gefið út að draga skuli úr takmörkun á skólastarfi í tónlistarskólum og auka þannig svigrúm til tónlistarkennslu til og með 1. desember. Þá verður tónlistarskólum heimilt að sinna einstaklingskennslu en halda skal tveggja metra reglu milli starfsfólks og nemenda. Hámarksfjöldi verður sambærilegur og í grunnskólum; 25 hjá eldri nemendunum, þ.e. í 5.–10. bekk en 50 hjá yngri nemendum. Tveggja metra reglan gildir um nemendur í 8.–10. bekk en ef víkja þarf frá henni skulu notaðar andlitsgrímur.

Á vef ráðuneytisins segir að foreldrar og aðstandendur skulu almennt ekki koma í tónlistarskóla nema brýna nauðsyn beri til. Aðrir en starfsmenn sem koma í tónlistarskóla, svo sem vegna vöruflutninga, skulu bera andlitsgrímur. Ráðstafanir skulu gerðar til að þrífa og sótthreinsa byggingar og búnað eftir hvern dag og milli einstaklinga og hópa í sama rými.

Reglugerðin hefur verið send Stjórnartíðindum. Hún tekur gildi við birtingu og gildir til og með 1. desember.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir