Austanátt og smá él framundan

Í dag gerir Veðurstofa Íslands ráð fyrir austan og norðaustan 3-10 m/s á Ströndum og Norðurlandi vestra, hvassast á annesjum. Yfirleitt léttskýjað og hiti 3 til 8 stig að deginum en nálægt frostmarki í nótt.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á miðvikudag:
Austlæg átt, víða 3-8 m/s og úrkomulítið, en él N- og A-til, einkum á annesjum. Hiti 0 til 5 stig vestanlands en vægt frost í innsveitum N- og A-lands.

Á fimmtudag (sumardagurinn fyrsti) og föstudag:
Hæg austlæg eða breytileg átt og él N- og A-til og líkur á stöku éljum eða skúrum SV- og V-lands en annars þurrt að kalla. Vægt frost NA-til, en hiti annars 1 til 7 stig.

Á laugardag:
Austan og norðaustanátt og úrkoma, einkum við N- og A-ströndina. Hlýnandi veður.

Á sunnudag og mánudag:
Útlit fyrir áframhaldandi austan og norðaustanátt. Dálítil úrkoma SA- og A-til, en annars úrkomulítið. Fremur milt veður.

Fleiri fréttir