AVS rannsóknarsjóður í sjávarútvegi auglýsir styrki til umsóknar
AVS rannsóknarsjóður auglýsir styrki til umsóknar en markmið sjóðsins er að styrkja verkefni sem stuðla að auknu verðmæti íslensks sjávarfangs og styrkja samkeppnishæfni íslensks sjávarútvegs og fiskeldis. Skilafrestur umsókna er til 1. febrúar 2012, kl. 17.
Hámarkstími verkefna er 12 mánuðir og hámarksupphæð styrkja er þrjár milljónir króna. Framlag sjóðsins má ekki fara fram yfir 50% af heildarkostnaði verkefnisins og sjóðurinn tekur ekki þátt í að styrkja fjárfestingar. Samkvæmt auglýsingu sem sjóðurinn hefur sent frá sér falla styrkir sem sjóðurinn veitir undir þrjá flokka:
1. Styrkir til rannsókna- og þróunarverkefna
Styrkir til afmarkaðra rannsókna- og/eða þróunarverkefna, sem falla að markmiðum sjóðsins. Veittur er styrkur til eins árs í senn og skal í umsókn gera grein fyrir verkþáttum og fjármögnun. Hver styrkur getur numið allt að átta milljónum króna. Hægt er að sækja um styrki til umfangsmeiri verkefna (framhaldsverkefna), sem unnin eru á lengri tíma, eða allt að þremur árum, en sækja þarf um styrk á hverju ári. Hafi verkefnið áður verið styrkt, þarf að gera grein fyrir fullnægjandi framvindu verkefnisins áður en styrkumsókn er afgreidd.
2. Smá- eða forverkefni
Hægt er að sækja um styrki til smærri verkefna eða verkefna til undirbúnings stærri verkefna á sviði rannsókna og/eða þróunar. Styrkupphæð er allt að einni milljón króna og skal verkefninu lokið innan tólf mánaða frá úthlutun.
3. Atvinnuþróun og nýsköpun í sjávarbyggðum
Veittir eru styrkir til verkefna, sem stuðla að nýjum störfum og aukinni verðmætasköpun í sjávarbyggðum. Horft er til ýmissa verkefna, sem geta tengst t.d. framboði á sjávarfangi, ferðaþjónustu, nýjum vörum eða þjónustu.
Umsóknum ber að skila rafrænt á netfangið avs@avs.is og bréflega á póstfangið AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi, Háeyri 1, 550 Sauðárkrókur.
AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi starfar á vegum sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins og veitir styrki til rannsókna- og þróunarverkefna sem auka verðmæti sjávarfangs. Nánari upplýsingar og umsóknarblað er að finna á heimasíðu sjóðsins www.avs.is.