Bæjarmálafélag stofnað á Skagaströnd
Bæjarmálafélag var stofnað á Skagaströnd þann 28. ágúst sl. sem hefur það að markmiði að vera vettvangur fyrir íbúa Skagastrandar að ræða um málefni sveitarfélagsins og að koma skoðunum sínum á framfæri við þá sem fara með yfirstjórnina.
„Það hefur verið í umræðunni árum saman að okkur vantaði svona félagsskap og hér er hann kominn á koppinn. Þessi vettvangur er fyrir alla áhugamenn, hvort sem þeir eru tengdir einhverju framboði eða engu,“ segir í tilkynningu á vef Svf. Skagastrandar.
Á stofnfundinn mættu 13 manns en á honum voru valdir þrír til að halda utan um starfið, þau Guðmundur Erlendsson, Guðmundur Ólafsson og Sigríður Gestsdóttir, munu þau boða til funda eða það sem til fellur.
„Vonum að þetta verði vettvangur sem fólk vill nýta sér til að fylgjast betur með málefnum samfélagsins og hafa áhrif á,“ segir loks í tilkynningunni.