Bæjarráð annast ráðningu fastráðinna starfsmanna

Á 10. fundi bæjarstjórnar Blönduóssbæjar s.l. þriðjudag var fundagerð bæjarráðs frá 8. mars kynnt og urðu nokkrar umræður um 9. lið 4. málsgr. þar sem ræddar voru skipulagsbreytingar milli  grunnskólans og íþróttamannvirkja sveitarfélagsins. Af því tilefni  var  lögð fram eftirfarandi bókun af S-lista.

“Fulltrúar S-listans mótmæla  vinnubrögðum sem viðhöfð eru við skipulagsbreytingar. Að gefnu tilefni viljum við árétta að samkvæmt samþykktum um stjórn og fundarsköp Blönduóssbæjar er það bæjarráð sem fjallar um og annast ráðningu fastráðinna starfsmanna annarra en stjórnenda og bæjarstjórn annast ráðningu stjórnenda og veitir þeim lausn.”Undir bókunina rita Hörður Ríkharðsson, Þórdís Erla Björnsdóttir og Þórdís Hauksdóttir.

Fleiri fréttir