Bændur fundi með samninganefnd

Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, gagnrýnir hversu lítið samráð samninganefnd Íslands í aðildarviðræðum við ESB, hefur haft við íslenska bændur í viðræðum sínum.

Samkvæmt Mbl.is voru samningsafstaða vegna aðildarviðræðna við ESB til umræðu á fundi utanríkismálanefndar sl. mánudag og samningahópar komu á fund nefndarinnar til að ræða stöðuna. Tólfti kafli samninganna var m.a. til umræðu þar sem mál eins og matvælaöryggi ásamt heilbrigði dýra- og plantna eru í forgrunni.

Í samtali við Mbl sjónvarp segir Gunnar Bragi samninganefndina hafa hist tvisvar vegna málsins áður en hún kom á fund utanríkismálanefndar og segir það óásættanlegan undirbúning. „Við fengum bréf frá Bændasamtökunum þar sem þetta er gagnrýnt mjög harkalega og það vekur að sjálfsögðu spurningar hvers vegna þetta er með þessum hætti,“ segir Gunnar Bragi í viðtalinu.

Framsóknarmenn vilja að fulltrúar Bændasamtaka Íslands komi til fundar við utanríkismálanefnd ásamt nefndinni.

Fleiri fréttir