Bætt fjarskiptasamband yfir Húnaflóa
Í gær var nýtt fjarskiptamastur sett upp við fjarskiptastöð Mílu í Reykjaneshyrnu í Árneshreppi á Ströndum. Mastrið er 18 metra hátt og á að bæta fjarskiptasambandið frá Hnjúkum við Blönduós, við Ávíkurstöðina í Reykjaneshyrnu í Árneshreppi.
Tvö vertakafyrirtæki sáu um verkið fyrir Mílu, en það er verktakafyrirtæki Græðir S/F sem kom með mastrið á dráttarbíl með krana og sá um að hífa mastrið á undirstöðuna. Síðan sá Rafholt EHF rafvertakafyrirtæki um uppsetningu og tengingar á örbylgjusendum (parabólum).
