Banaslys á Hrútafjarðarhálsi
Karlmaður á þrítugsaldri lést þegar bíll sem hann ók valt á Hrútarfjarðarhálsi síðdegis í dag, um klukkan hálffimm. Karlmaðurinn var einn á ferð en samkvæmt heimildum Mbl.is kastaðist hann út úr bílnum í slysinu.
„Aðstæður voru góðar þegar slysið átti sér stað, vegurinn auður og akstursskilyrði góð að sögn lögreglu. Ekki er vitað á þessari stundu hvað varð til þess að bíllinn valt,“ segir á Mbl.is.
Um er að ræða fyrsta banaslysið í umferðinni á þessu ári en lögreglan á Akureyri fer með rannsókn slyssins.