Banaslys á Vatnsskarði

Karlmaður á sjötugsaldri lést á Vatnsskarði eftir hádegi í gær þegar bifreið sem hann ók hafnaði utan vegar. Samkvæmt upplýsingum sem Mbl.is hefur frá lögreglunni á Blönduósi var maðurinn einn í bifreiðinni þegar slysið átti sér stað.

Maðurinn var úrskurðaður látinn á slysstað en tildrög slyssins eru enn ókunn að sögn lögreglu. Lögregla vinnur nú að rannsókn málsins.

Fleiri fréttir