Bann við dragnót fellt úr gildi í fjörðum norðanlands

Þorleifur EA 88 í Sauðárkrókshöfn. Mynd: PF.
Þorleifur EA 88 í Sauðárkrókshöfn. Mynd: PF.

Tímabundið ákvæði um bann við veiðar með dragnót, sem komið var á á árunum 2010 til 2013, falla úr gildi á nokkrum svæðum fyrir Norðvesturlandi. Dragnótabátum er því heimilt að veiða á ný, án landfræðilegra takmarkana, á Hrútafirði, Miðfirði, Húnafirði og Skagafirði.

Tilkynnt er á vef Fiskistofu að frá og með gærdeginum, 1. nóvember, féllu úr gildi tímabundin ákvæði um bann við veiðum með dragnót á nokkrum svæðum fyrir Norðvesturlandi og út af Austfjörðum sem sett voru í því augnamiði að friða innri hluta flóa og fjarða fyrir veiðum með dragnót. Umrædd ákvæði voru sett á árunum 2010 til 2013.

Dragnótabátarnir Onni HU 36, Þorleifur EA 88, Harpa HU4 og Hafrún HU 12 hafa stundað veiðar og landað í höfnum á Norðurlandi vestra en nú gefst þeim tækifæri á að fara víðar með veiðarfærin sín.                                                                                                                                                                                                  

Ákvæðin sem falla úr gildi er að finna í eftirtöldum reglugerðum:
1. gr. reglugerðar nr. 780/2015, um bann við dragnótaveiðum fyrir Norðurlandi með síðari breytingum:
Til og með 31. október 2017 eru allar dragnótaveiðar bannaðar á eftirgreindum svæðum:

1. Húnafjörður innan svæðis sem markast af línum sem dregnar eru á milli Sölvabakka 65°42,5´N - 020°16,5´V, norðurenda Fáskrúðsskers 65°42,5´N - 020°42,8´V og þaðan í 180° réttvísandi til lands.

2. Skagafjörður innan svæðis sem markast af línu sem dregin er á milli Ásnefs 65°56,5´N - 019°53,0´V og Þórðarhöfða 65°58,4´N - 019°29,7´V.

3. Hrútafjörður - Miðfjörður innan svæðis sem markast af línu sem dregin er þvert yfir utanverðan Hrútafjörð og Miðfjörð eftir 65°26´N.

Þrátt fyrir ákvæði 1. ml. er vesturhluti Hrútafjarðar opinn fyrir veiðum með dragnót vestan línu sem dregin er eftir 21°08´V, frá og með 1. júní til 1. mars utan línu sem dregin er eftir 65°23´N og frá og með 1. nóvember til og með 31. janúar utan línu sem dregin er eftir 65°21´50 N og vestan línu sem dregin er eftir 21°08´V. Miðfjörður er opinn fyrir veiðum með dragnót utan línu sem dregin er eftir 65°23´N á tímabilinu frá og með 1. júní til 1. mars.

4. Húnaflói - veiðar eru bannaðar skipum lengri en 22 m að mestu lengd innan línu sem dregin er eftir 66°00´N þvert yfir Húnaflóa.

Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. eru skipum lengri en 22 metrar sem stundað hafa veiðar með dragnót í Húnaflóa á síðastliðnum þremur árum heimilar veiðar innan fyrrgreindrar línu.

5. Úti fyrir Ströndum innan svæðis sem markast af línu sem dregin er milli Rana í Hornbjargi 66°27,3´N - 022°24,1´V í Selsker 66°07,5´N - 021°30,0´V og þaðan í Gjögurvita 65°59,3´N - 021°19,0´V.

Tengdar fréttir:

Dragnótaveiðar bannaðar á ákveðnum svæðum

Skora á ráðherra að afturkalla reglugerð um bann við dragnótaveiðum

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir