Barist gegn brottkasti innan ESB

Á vef LÍÚ er sagt frá því að um 137.000 manns hafi skrifað undir áskorun breska matreiðslumannsins Hugh Fearnley-Whittingstall til fiskveiðistjóra Evrópusambandsins, Maria Damanaki, um að brottkast á fiski verði þegar í stað bannað innan Evrópusambandsins.

Undirskriftasöfnunin hófst í nóvember undir yfirskriftinni Hugh's Fish Fight. Hún fór rólega af stað þrátt fyrir talsverða kynningu, en hefur vakið ört vaxandi athygli í kjölfar sjónvarpsþáttar á Channel 4, þar sem Fearnley-Whittingstall sýnir stórfellt brottkast breskra sjómanna.

Myndskeið úr sjónvarpsþættinum er nú aðgengilegt á netinu með íslenskum texta. Þar lýsa sjómenn því hryggir í bragði að þeir eigi engra annarra kosta völ en að kasta góðu hráefni fyrir borð. Vegna reglna ESB megi þeir ekki koma með aflann að landi. Sjá HÉR

Fleiri fréttir