Beðið með mokstur á Siglufjarðarvegi vegna snjóflóðahættu

Á Norðurlandi vestra er hálka eða snjóþekja á flestum leiðum þó er þungfært frá Hofsós að Fljótum. Ófært er á Siglufjarðarvegi og beðið með mokstur vegna snjóflóðahættu. Þæfingsfærð og snjókoma er í Langadal.

Norðvestan 10-18 m/s og snjókoma er í landshlutanum, en hægari um hádegi og él. Gengur í norðaustan 10-18 í kvöld með snjókomu. Norðan 8-13 í fyrramálið og dálítil él, en lægir seinnipartinn á morgun. Frost 1 til 7 stig.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á laugardag:

Minnkandi norðanátt, 5-13 m/s síðdegis, hvassast A-ast. Dálítil él NA-til, en léttskýjað um landið S- og V-vert. Frost 2 til 12 stig, kaldast inn til landsins.

Á sunnudag:

Hæg breytileg átt og víða léttskýjað. Frost 4 til 18 stig, mest í innsveitum. Austan 5-10 SV-til um kvöldið og skýjað.

Á mánudag:

Austan 8-13 m/s og él með S- og A- ströndinni, en annars víða 3-10 og bjart með köflum. Frost frá 1 stigi syðst, upp í 16 stig í innsveitum fyrir norðan.

Á þriðjudag:

Austlæg átt, yfirleitt á bilinu 3-10 m/s. Dálítil él A-lands, en bjartviðri V-til. Frost 0 til 10 stig.

Á miðvikudag:

Hæg breytileg átt og víða bjart veður, en stöku él við sjávarsíðuna. Frost 0 til 12 stig, mest í innsveitum.

Á fimmtudag:

Útlit fyrir sunnanátt með snjókomu eða slyddu, en síðar rigningu S- og V-lands og hlýnar í veðri.

Fleiri fréttir