Grundvallarforsenda árangursríkrar uppbyggingar fjölbreytts atvinnulífs
Vinstrihreyfingin – grænt framboð ályktaði um mikilvægi þess að komið verði á reglubundnu millilandaflugi um Norður- og Austurland á landsfundi VG sem haldinn var á Selfossi um sl. helgi. Í ályktun fundarins segir að beint millilandaflug sé ein grundvallarforsenda árangursríkrar uppbyggingar fjölbreytts atvinnulífs í landshlutanum.
Ályktunin er svohljóðandi:
„Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, haldinn á Selfossi 23. – 25. október 2015, leggur áherslu á mikilvægi þess að stjórnvöld veiti nauðsynlegan stuðning og beiti sér fyrir því að komið verði á reglubundnu millilandaflugi um Norður- og Austurland samhliða eflingu almenningssamgangna á svæðinu. Beint millilandaflug er ein grundvallarforsenda árangursríkrar uppbyggingar fjölbreytts atvinnulífs á Norður- og Austurlandi, hvort sem um er að ræða ferðaþjónustu eða aðrar atvinnugreinar sem byggja á góðum tengingum við erlenda markaði.“
Ályktanir landsfundar VG má finna á heimasíðu hreyfingarinnar.