Ben Luber á förum

Ben Luber

Nú er það ljóst að Ben Luber leikmaður Tindastóls í Körfunni er á förum. Þetta staðfestir Kristinn Friðriksson þjálfari liðsins.


-Svo virðist sem hann eigi erfitt með að aðlagast sem atvinnumaður. Luber ætlar að spila leikina á fimmtudaginn og sunnudaginn svo er hann farinn, segir Kristinn.
–Allt annað gengur vel. Veturinn leggst vel í mig körfuboltalega séð. Ég vonast til að liðið styrkist með tilkomu þeirra Rikka og Axels, (Friðriks Hreinssonar og Axels Kárasonar), en þeir koma í desember, segir Kristinn sem er að leggja grunn að sigri Tindastóls á Stjörnunni hér heima á fimmtudag og UMFN í Njarðvík á sunnudaginn.

Fleiri fréttir