Bikarkeppni LH aflýst
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Hestar, Vestur-Húnavatnssýsla
22.04.2014
kl. 14.09
Vegna dræmrar skráningar hefur Bikarkeppni LH verið aflýst. 35 skráningar bárust frá 28 þátttakendum. Þetta kemur fram á heimasíðum hestamannafélaganna í Skagafirði. Félögin sem skráðu lið til leiks voru þessi: Hörður, Fákur, Sprettur, Léttir, og Glæsir.
LH þakkar þeim sem skráðu sig auðsýndan áhuga og framtakssemi. Bikarkeppni LH kemst án efa á laggirnar á næsta ári og biðjum við þá áhugasama að sýna áhuga sinn í verki og vera með í stórskemmtilegri liða- og einstaklingskeppni.