Bílar útaf í hvassviðrinu í gær

Mikið hvassviðri gekk yfir Norðurland í gær og lentu margir vegfarendur í vandræðum vegna þess. Vörubíll endaði utan vegar við gatnamót Þjóðvegar 1 og Hvammstangavegar en samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Blönduósi urðu engin meiðsli á fólki enda bíllin ekki á mikilli ferð og lendingin mjúk í snjónum. Mikil hálka og skafrenningur var þegar óhappið átti sér stað.

Þá lentu margir í vandræðum á Þverárfjalli í gær en þar fauk m.a. flutningabíll út af veginum og í Langadal fauk gámur af öðrum flutningabíl. Veðrið hefur gengið niður og er blíða í Húnavatnssýslum.

Fleiri fréttir