Bílastæðamálum og ástandi gagnstétta ábótavant

Frá Blönduósi. Mynd: KSE
Frá Blönduósi. Mynd: KSE

Á fundi byggðaráðs Blönduósbæjar í síðustu viku var tekið fyrir erindi frá foreldrafélagið Leikskólans Barnabæjar varðandi bílastæðamál við leikskólann. Fram kom að foreldrafélagið hefði miklar áhyggjur af bílastæðamálum og færi þess að leit að þau yrðu skoðuð.

Þá benti foreldrafélagið á að gagnstéttamálum við Sunnubraut, Holtabraut og Smárabraut væri ábótavant en fagnaði lagfæringum á gangbrautum í bænum. Byggðaráðið þakkaði bréfið og mun taka erindið upp við tæknideild Blönduósbæjar vegna fjárhagsáætlunar 2017 sem nú stendur yfir, að því er fram kemur í fundargerð. 

Fleiri fréttir