Bílvelta í Langadal

Bíll valt niður háan kant og ofan í gil í Langadal í dag. Að sögn lögreglunnar á Blönduósi var kona við stýrið og hafði hún misst stjórn á bíl sínum með fyrrgreindum afleiðingum.

Fram kemur á mbl.is að slysið átti sér stað á fimmta tímanum í dag og konan var flutt með sjúkrabíl á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Ekki er vitað um meiðsl hennar en hún var með meðvitund þegar komið var að henni. Samkvæmt lögreglunni á Blönduósi var krapi á vegi, hvassviðri og slydda þegar slysið átti sér stað.

Fleiri fréttir