BINGÓ – BINGÓ
Nú er komið að hinu árlega stórbingói 9. bekkjar Húnavallaskóla og verður það haldið næstkomandi föstudag, þann 4. mars. Húsið opnað kl. 19:30 og bingóið hefst kl. 20:00.Eftir bingóið verður diskótek til kl. 00:30.
Á bingóinu verður fullt af flottum og veglegum vinningum og tombólan verður auðvitað á sínum stað, þannig að allir fá eitthvað!! Það verða ENGIN NÚLL!!
- Miðaverð 14 ára og eldri 1.000 kr.
- 7 – 13 ára 500 kr.
- Ókeypis fyrir börn 6 ára og yngri.
- Aukaspjöld kosta 200 kr.
Að bingóinu loknu mun verða glæsilegt kaffihlaðborð 1.000 kr. fyrir fullorðna, 500 kr. fyrir 13 – 16 ára en frítt fyrir 12 ára og yngri. Allir að mæta og skemmta sér ótrúlega vel og munið eftir góða skapinu. Athugið að ekki er tekið við greiðslukortum
9. bekkur Húnavallaskóla