Birnur á Hvammstanga sigursælar
Kvennalið Kormáks á Hvammstanga í blaki, Birnurnar, gerði góða ferð suður á Álftanes um helgina á hraðmót sem haldið var til styrktar kvennalandsliðinu í blaki. Alls var keppt í sex deildum og voru reglur frábrugnar því sem venja er þar sem spilað var upp á tíma en ekki til stiga eins og venja er.
Birnurnar kepptu í fjórðu deild og fóru þar með sigur af hólmi, spiluðu fjóra leiku og unnu tvo þeirra og gerðu jafntefli í tveimur þar sem þeim var einnig dæmdur sigur.