Biskup Íslands vísiterar í Skagastrandarprestakalli
Biskup Íslands, frú Agnes M. Sigurðardóttir, mun vísitera í Skagastrandarprestakalli á morgun, þriðjudag 25. september, og á miðvikudag, 26. september. Biskup heimsækir allar kirkjur prestakallsins, í sveitakirkjunum verður haldin helgistund með hugleiðingu sem biskup flytur og í Hólaneskirkju mun biskup flytja prédikun við messu á þriðjudagskvöld.
Dagskrá vísitasíunnar er svohljóðandi:
Þriðjudagur 25. sept.
Kl. 11.30 Bergsstaðakirkja
Kl. 12.30 Bólstaðarhlíðarkirkja
Kl. 15.00 Holtastaðakirkja
kl. 20.30 Hólaneskirkja - Biskup Íslands, frú Agnes M. Sigurðardóttir prédikar, sr. Bryndís Valbjarnardóttir þjónar fyrir altari. Sr. Magnús Magnússon og sr. Þorvaldur Víðisson lesa ritningarlestra. Organisti, Hugrún Sif Hallgrímsdóttir. Kór Hólaneskirkju syngur. Meðhjálpari, Steindór R. Haraldsson.
Miðvikudagur 26. sept.
kl. 10.30 Höskuldsstaðakirkja
kl. 10.45 Höskuldsstaðakirkja– Biskup Íslands vígir sögutorg í Höskuldsstaðakirkjugarði (sjá frétt á Feyki.is https://www.feykir.is/is/a-hunavatnssysla/biskup-heimsaekir-hoskuldsstadakirkju)
kl. 12.00 Hofskirkja
kl. 14.30 Sæborg, dvalarheimilið á Skagaströnd.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.