Biskupinn heimsótti Skagaströnd og Skagafjörð
Biskupinn yfir Íslandi, herra Karl Sigurbjörnsson, kom í gær í stutta heimsókn á Skagaströnd. Var biskup í ferð með starfsfólki biskupsstofu og lá leið þeirra að Löngumýri í Skagafirði með viðkomu á Skagaströnd.
Á Skagaströnd tóku þau Lárus Ægir Guðmundsson, formaður sóknarnefndar, og Úrsúla Árnadóttir, sóknarprestur, á móti hópnum og buðu honum til kirkju.
Lárus sagði frá kirkju á Spákonufelli frá upphafi kristni og til kirkju á Skagaströnd á vorum dögum. Hann sagðist hafa ræðuna stutta en ekki væri víst að hún hefði verið jafn stutt ef meðhjálparinn ,Steindór R. Haraldsson, hefði haft tök á því að mæta og flutt ræðu, en hann er í Reykjavík.
Úrsúla sagði frá sóknarstarfinu og þar með æskulýðsstarfi sem er í miklum blóma.
Biskup þakkaði fyrir móttökurnar og sagði það ávallt ánægjulegt að koma á Skagaströnd.
Að þessu loknu leiddi Magnús B. Jónsson, sveitarstjóri, hópinn í skoðunarferð um Skagaströnd. Ferðinni var svo framhaldið og ók hópurinn fyrir Skaga og inn í Skagafjörð.