Bjart að mestu í dag en gengur í hvassa norðaustanátt á morgun

Færð á vegum Norðanlands kl. 9:15 í dag, 3. desember 2015. Mynd/Vegagerðin.
Færð á vegum Norðanlands kl. 9:15 í dag, 3. desember 2015. Mynd/Vegagerðin.

Bjart verður að mestu í dag á Ströndum og Norðurlandi vestra en líkur á smáéljum. Frost 0 til 10 stig, mildast við sjávarsíðuna. Samkvæmt vef Vegagerðarinnar er snjóþekja og hálka á vegum á Norðurlandi en þæfingsfærð á nokkrum sveitavegum. 

Vegna vinnu við endurbætur á rafkerfi í Strákagöngum má búast við umferðartöfum þar á virkum dögum frá klukkan 8:00-18:00 fram til 22. desember.

Veðurhorfur á landinu næstu daga: 

Á föstudag:
Gengur í hvassa norðaustanátt, en stormur nyrst á landinu um kvöldið. Víða snjókoma, en slydda með A-ströndinni. Minnkandi frost, yfirleitt 0 til 5 stig um kvöldið. 

Á laugardag:
Norðan hvassviðri eða stormur með snjókomu, en þurrt að mestu S-lands. Frost 0 til 7 stig. Dregur hægt úr vindi og úrkomu með kvöldinu. 

Á sunnudag:
Norðlæg átt og dálítil él fyrir norðan, en þurrt og bjart veður syðra. Harðnandi frost. 

Á mánudag og þriðjudag:
Austan- og síðar norðaustanátt og él N- og A-til, annars víða bjart. Kalt í veðri. 

Á miðvikudag:
Breytileg átt og él með S- og V-ströndinni, annars þurrt og jafnvel bjart.

Fleiri fréttir