Bjart að mestu og kaldast í innsveitum
Hæg suðlæg eða breytileg átt er á Ströndum og Norðurlandi vestra. Bjart að mestu og frost 2 til 15 stig, kaldast í innsveitum. Áframhaldandi hálka er síðan á velflestum vegum Norðanlands. Búast má við umferðatöfum í Strákagöngum vegna vinnu við endurbætur á rafkerfi. Vegfarendur eru beðnir að sýna tillitssemi og virða hraðatakmarkanir.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á miðvikudag:
Vaxandi suðaustanátt um landið S-vert, 8-15 m/s seinnipartinn og slydda eða rigning með köflum. Hægari vindur N-til, léttskýjað og minnkandi frost.
Á fimmtudag:
Suðaustan 10-20 m/s, hvassast V-ast á landinu. Þurrt að kalla N-til, annars rigning, einkum SA-lands. Hiti 2 til 8 stig.
Á föstudag:
Vestlæg eða breytileg átt. Rigning, slydda eða snjókoma A-til og hiti 0 til 5 stig. Úrkomulítið V-til og hiti um frostmark.
Á laugardag:
Suðlæg eða breytileg átt. Rigning, slydda eða snjókoma, einkum S-lands. Hiti kringum frostmark.
Á sunnudag og mánudag:
Suðvestanátt með éljum, en bjartviðri NA- og A-lands. Frystir um mestallt land.